Pizzakvöld

á föstudaginn verður Pizzakvöld í féló......ásamt því að við kynnum úrslit kosninga úr nafnasamkepninni
Skráning fyrir Pizza-madnessið  er hjá Lísbet og lýkur í hádeginu á föstudag- kosning á nýju nafni stendur einnig fram á hádegi þann dag.
Kjósið, og skráið ykkur- gaman gaman-
Pizzatröllið

flugvélamódelsmíðaáhugamenn ath!

Graffity-og stomp Smiðja !

Anni er á leiðinni aftur til Ísafjarðar til að kenna okkur meira í Graffity-list.
Þeir sem voru á námskeiðinu í fyrra geta staðfest að þetta er eitthvað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Námskeiðið verður haldið dagana 23.-27. október og endar með sýningu sem verður hluti af glæsilegri dagskrá Vetrarnátta.
Allir hvattir til að skrá sig í Féló fyrir mánudaginn 15. október!!!
Námskeiðið kostar örlítinn aur og er innifalið allt efni, kennsla og allir þeir brandarar sem Anni kemur til með að segja.
Um að gera að skrá sig því ekki er pláss fyrir endalaust af fólki

á döfinni...

Á föstudagskvöld munu Lufsurnar halda fyrsta fund sinn í vetur.
Þið skvísur sem stefnið að því að vera með(sem flestar vonandi) mætið bara í féló einhverntíman á milli 20 og 22 og sjáið hvað um er að vera.

Lufsurnar eru skemmtilegur hópur stelpna sem láta ekki vaða yfir sig, finnst gaman að hanga saman og skipuleggja skemmtilega viðburði.
Það er mikið verk fyrir höndum í vetur og pressan er gífurleg að ná að gera Lufsurnar sterkari og voldugri en nokkru sinni fyrr!!!

Sjáumst hressar
Ofur-Lufsan

Roooosalegt keppniskvöld afstaðið!

um 70 manns mættu á keppniskvöld félagsmiðstöðvarinnar í gær og 40 krakkar þreyttu hinar ýmsu keppnir með misgóðum árangri.
Eftir mikla elju, þrautsegju og uppköst stóðu stoltir unglingar uppi sem sigurvegarar og vert er að minnast á að öll hegðun og umgengni í kringum og eftir kvöldið var til mikils sóma!

Á föstudagskvöldið er svo bíókvöld, og stefnum við á að gera lítið annað en að liggja, borða snakk og glápa á góða ræmu:)
mætum öll!!
« Fyrri síða Síða 13 af 15 Næsta síða »
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

Fréttasafn

Úr myndasafni