Vitsmunarándýriđ, Ullasokkabandí og fleira

Jæjja nú er þrusufjör ! Vitsmunarándýrið komið á skrið og fór fyrstu keppnirnar í fyrstu umferð fram í gærkvöldi!
Þar börðust Arnheiður, Björk og Bæring (Gleðikálfarnir)  við Salmar, Stefán Óla og Stefán Friðbjörns (Þeir). En þar fóru Gleðikálfarnir með sigur úr býtum og eru þar með komin í átta liða úrslit.  Einnig kepptu Elena, Melkorka og Erla Rut við Bjarna Maron, Þóri og Þórólf og unnu strákarnir stelpurnar og eru því komnir í átta liða úrslit !

Næsta keppni mun fara fram á mánudagskvöldið næstkomandi, og svo höldum við ótrauð áfram á miðvikudaginn  !

Ullasokkabandíið verður haldið annað kvöld, við fáum íþróttasalinn að láni, og þeir sem taka þátt verða að muna eftir ullarsokkunum sínum, því annars er enginn tilgangur með keppninni ! :) Það er ennþá hægt að skrá sig á skrifstofunni hjá Maju.

Annars eru fjórir einstaklingar úr nemendaráði að fara ásamt Maju á landsmót Samfés á morgun, og verða á Sauðakróki yfir helgina, að uppfræða sig, kynnast öðrum krökkum og skemmta sér konunglega!

Skrifađu ţitt álit:












Úr myndasafni