Dagskrá vikunnar
Nemendaráð fundaði í gær og settu saman smá dagskrá fyrir þessa viku.
Á miðvikudagskvöldið ætlum við að fara út ef að veður leyfir, og þá ætlum við að fara í TvíTví og fleiri leiki. Alltaf gaman að komast aðeins út. Á meðan á því stendur verður lokað í féló, en það eiga að sjálfsögðu allir þeir sem ætla í féló að koma og vera með í því að skemmta okkur saman !
Á föstudagskvöldið er meiningin að halda Leiktu Betur keppni, sem felst í því að tver eru saman í liði og annar aðilinn fær orð sem hann á að túlka með listrænum leik, á meðan að liðsfélagi hans reyni að geta hvað það er sem hann er að túlka. Þetta getur orðið afar spaugilegt og skemmtilegt og vonandi taka sem flestir þátt, nú eða koma bara til að horfa á !
Skráning í Hnoðra stendur yfir, Arnheiður Steinþórsdóttir verður ritstjóri Hnoðra í ár, og vonandi eru sem flestir sem hafa áhuga á að taka þátt í því að skapa skemmtilega ritsmíð fyrir okkur öll ! Skráningarblaðið hangir uppi hjá skrifstofunni minni (Maríu).
Einnig er skráning í Tækniráðið í gangi, og gengur hún vel, en það eru aldrei of margir skráðir í tækniráðið, því hvet ég alla til að koma og skrá sig á blaðið !