Söngkeppni Samfés
Föstudaginn 26. janúar verður haldin undankeppni söngkeppni samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi (Samfés) á Ísafirði. Þessi keppni er fyrri undankeppni af tveim til þess að skera úr um hverjr munu taka þátt fyrir hönd sinnar félagsmiðstöðvar á stóru landskeppni Samfés um besta söngvara félagsmiðstöðva á Íslandi.
Þann 26. janúar munu deildir innan Félagsmiðstöðvar Ísafjarðarbæjar keppa um laus sæti á landshlutakeppni fyrir söngkeppni samfés sem fer fram á Hólmavík í febrúar. Keppnin verður haldin á sal Grunnskólans á Ísafirði í nýju og glæsilegu tónleikakerfi sem skólinn fjárfesti í nýlega. Hljómsveitin XenoPhobia sér um lifandi undirleik með atriðum.