Ćtlum ađ mála félagsmiđstöđina

Nokkrir krakkar úr nemendaráði hafa boðið sig fram ti lað mála kósí herbergið okkar og ákváðum við að ráðast í það á morgun miðvikudag 
undirbúningur hefst á milli 16 og 18 og svo málum við um kvöldið.. litirnir verða ákveðnir þá

einnig ætla nokkrir töffarar að fá að graffa veggina okkar í hljóðverinu og mun vera skemmtilegt að sjá útkomuna á því 

ef að einhverjir hafa áhuga á að taka þátt í þessu er þeim frjálst að mæta en ég vill minnast á að það er því miður ekki hægt að hafa of marga

spurning um að íþróttaráð geri bara eitthvað í salnum á meðan 

Leynivinavikan Í fullum gangi

Já það er rétt.... flestir búnir að velja sér leynivin og allir að vinna á fullu í að koma sínum vin á óvart með hinum ýmsu uppátækjum 
í gær var ljóðaþema og má nú segja að þau hafi komið mörg skrautleg 
í dag Þriðjudag er myndaþema þar sem að aðalatriðið er að teikna einhverja fallega mynd og gefa leynivin sínum .
á morgunn miðvikudag er matarþema þar sem áætlað er að gefa leynivininnum eitthvað gott í maga og verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr því 
á fimmtudagin er grín þema og hvort sem að það verður í formi brandara eða eitthvers annars sprells er ómögulegt að vita 
á föstudaginn verður svo lokin þar sem að leynivinurinn sjálfur birtist með sýna gjöf og verða þá fagnaðarfundir.  þema þess dags er ást með nammi ívafi þar sem að súkkulaðið á eflaust eftir að vera vinsælt 

Mikið hlakkar  mig til að sjá svipinn á flestum á föstudaginn 


Síđan ađ lifna viđ

já nú höfum við fengið aðganginn af þessari síðu og ætlum að reyna að halda henni virkri... Ég mun setja inn nýjar fréttir og viðburði hér inn 

Bíókvöld, Vitsmunarándýriđ og Íţróttahátíđ !

Ný vika runnin upp!

Í kvöld verður Bíókvöld og kózýheit, myndin verður sett í "tækið" klukkan 20:00 allir að mæta !

Svo á miðvikudag heldur keppnin um Vitsmunarándýrið áfram! Næstu lið sem keppa verða:


1. umferð:
Hjörvar, Birkir, Tómas eða Hjölli og hlunkarnir 
og keppa þeir á móti  Helgu, Sigurlaugu og Marín eða Skvísulínununm og svo
 

2.umferð:
María Rebekka, Sunna, Anna María eða Rauðkurnar á móti

Vitsmunarándýriđ, Ullasokkabandí og fleira

Jæjja nú er þrusufjör ! Vitsmunarándýrið komið á skrið og fór fyrstu keppnirnar í fyrstu umferð fram í gærkvöldi!
Þar börðust Arnheiður, Björk og Bæring (Gleðikálfarnir)  við Salmar, Stefán Óla og Stefán Friðbjörns (Þeir). En þar fóru Gleðikálfarnir með sigur úr býtum og eru þar með komin í átta liða úrslit.  Einnig kepptu Elena, Melkorka og Erla Rut við Bjarna Maron, Þóri og Þórólf og unnu strákarnir stelpurnar og eru því komnir í átta liða úrslit !

Næsta keppni mun fara fram á mánudagskvöldið næstkomandi, og svo höldum við ótrauð áfram á miðvikudaginn  !

Ullasokkabandíið verður haldið annað kvöld, við fáum íþróttasalinn að láni, og þeir sem taka þátt verða að muna eftir ullarsokkunum sínum, því annars er enginn tilgangur með keppninni ! :) Það er ennþá hægt að skrá sig á skrifstofunni hjá Maju.

Annars eru fjórir einstaklingar úr nemendaráði að fara ásamt Maju á landsmót Samfés á morgun, og verða á Sauðakróki yfir helgina, að uppfræða sig, kynnast öðrum krökkum og skemmta sér konunglega!

Dagsrká vikunnar og fleira

Leiktu betur gekk eins og í sögu síðast liðinn föstudag! Þar fengum við að upplifa alveg hreint ótrúlega leiktilburði á köflum, og blæbrigði sem að ég held, hafi sjaldan sést áður. Þetta var frábær skemmtun, og allir höfðu einkar gaman að !

Sigurvegarnir í Leiktu Betur 2009 voru Bjarni Maron og Þórólfur Marel, sem túlkuðu orðin með einskærri innlifun
Í öðru sæti voru Hinrik og Tómas, sem einni sýndu afbragðs leiktakta !

Í þessari viku er planað að hafa á mánudagskvöldið: Youtube kvöld, á miðvikudagskvöldið: Guitar Hero mót (skráning hjá skrifstofu) og á föstudagskvöldið er að sjálfsögðu það sem að allir hafa verið að bíða eftir:  BUSABALLIÐ!

En nú  eru tíunda bekkingarnir okkar  að þreyta könnunarpróf og óska ég þeim góðs gengi ! :)

Leiktu Betur !!

Í kvöld verður leiktu betur á sal í Félagsmiðstöðinni !
Skráningin hefur gengið ágætlega, en ennþá er pláss fyrir mun fleiri !

ALLIR AÐ MÆTA !

Vikan!

Á miðvikudagskvöldið verður Stelpu/Strákakvöld frá 19:30-22:00.

Stelpurnar fara með Maju í Skólagötu 10 að hafa það kózý og strákarnir verða með Magga í félagsmiðstöðinni að strákast ! =)

Á föstudagskvöldið verður stórskemmtilegur atburður í gangi, en þá Leiktu Betur á sal í félagsmiðstöðinni! Þar keppast lið um að túlka þau orð sem koma upp og eiga liðsfélagar þeirra að reyna að geta hvað sé verið að leika. Án efa frábær viðburður og einkar spaugilegur !

Hægt er að skrá sig ásamt liðsfélaga í Leiktu Betur hjá skrifstofunni minni (Maju) út vikuna !

Dagskrá vikunnar

Nemendaráð fundaði í gær og settu saman smá dagskrá fyrir þessa viku.

Á miðvikudagskvöldið ætlum við að fara út ef að veður leyfir, og þá ætlum við að fara í TvíTví og fleiri leiki. Alltaf gaman að komast aðeins út. Á meðan á því stendur verður lokað í féló, en það eiga að sjálfsögðu allir þeir sem ætla í féló að koma og vera með í því að skemmta okkur saman  !

Á föstudagskvöldið er meiningin að halda Leiktu Betur keppni, sem felst í því að tver eru saman í liði og annar aðilinn fær orð sem hann á að túlka með listrænum leik, á meðan að liðsfélagi hans reyni að geta hvað það er sem hann er að túlka. Þetta getur orðið afar spaugilegt og skemmtilegt og vonandi taka sem flestir þátt, nú eða koma bara til að horfa á !

Skráning í Hnoðra stendur yfir, Arnheiður Steinþórsdóttir verður ritstjóri Hnoðra í ár, og vonandi eru sem flestir sem hafa áhuga á að taka þátt í því að skapa skemmtilega ritsmíð fyrir okkur öll ! Skráningarblaðið hangir uppi hjá skrifstofunni minni (Maríu).

Einnig er skráning í Tækniráðið í gangi, og gengur hún vel, en það eru aldrei of margir skráðir í tækniráðið, því hvet ég alla til að koma og skrá sig á blaðið !

Úrslit kosninga !

Þeir sem að komust að í nemendaráð voru:

Aðalmenn úr 10.bekk:
Arnheiður
Guðlaug
Salmar


Varamenn úr 10.bekk
Hinrik
Róbert
Anton Ingi

Aðalmenn úr 9.bekk
Bjarni Maron
Birta
Regína

Varamenn úr 9.bekk
Skúli
Ísak Emanúel
Heba Dís

Aðalmenn úr 8.bekk
Andri Freyr
Kristín Harpa
Melkorka Ýr

Varamenn úr 8.bekk:
Sigrún Gundís
Hákon Ari
Dagur Elí

Til hamingju krakkar !

Fréttasafn

Úr myndasafni